Tuesday, November 01, 2005

Frunsa og Híbýli

Eg er með svooo stóra frunsu hun er svakaleg ég hef bara aldrei fengið svona áður semt er ég með hanna allveg í frunsukrembaði, allavega var að fara að blogga þegar litháenarnir, held að þeir séu þaðan bönkuðu hjá mér ok eftir smá stúss við að reina að skilja hvort annað þá komst ég að því að ég ætti að geyma fyrir þá lykla sem vinur þeirra kæmi svo að sækja kl 20 til að hann geti komist inn þannig eg er bara að fara að vera heima í kvöld enda hafði ég svosem ekki önnur plön það er nebblega hellirigning.

Ég sá einu inni í einhverju blaði örugglega í birtu eða eitthvað viðtal við fólk sem var að lista upp alla þá staði sem það hefur búið á , ég ætla núna að þykjast að það sé ég sem sé í þessu viðtali.

Fyrst eftir að ég fæddist þá bjó ég ýmist hjá ömmu og Afa á Holtó eða Ömmu í Reykjavík , á meðan vafalaust nett fríkaðir foreldrar mínir reyndu að höndla það að vera orðin mamma og pabbi rétt svo komin með aldur til að fara í ríkið, mér hefur vafalaust liðið vel á þessum stöðum þar sem samband mitt við ömmur mínar og Afa hefur alltaf verið mjög náið og gott. Hef reyndar sf því spurnir að ég hafi átt það til að verða bumbult eitthvað og halda þar með öllum vakandi eitthvað fram eftir nóttu, hef nú reyndar lúmskan grun að mér hafi bara þótt þægilegra að sofa á öxl eða handlegg og láta sveifla mér til og frá. Ég hef líka alltaf sofið vel í skipum og svo finnst mér ennþá mjög gaman að róla.

Æsufell 6
Eina skiptið sem ég hef búið í ghettóinu, þar bjó ég til 3 eða 4 ára aldurs, og þarna man ég eftir mér ég á tvær minningar sem ég man úr Breiðholtinu en núna veit ég ekki hvor ég man það lengur eða hvort ég bara veit að ég mundi það hef oft velt þesu fyrir mér ég nefninlega veit að ég mundi einhverntíman eftir þessu og fannst það svo merkilegt að ég laggði það á minnið á þeim tímapunkti: Hvernig veit ég þá hvort ég muni eftir atburðinum sjálfum eða muni bara eftir þegar ég mundi eftir honum ????
Allavega ég man eftir að hafa læst mig inn á klósti og ég man að ég var skíthrædd því það var myrkur . Svo man ég eftir að vera inn í eldhúsi og horfa á pabba elda , hann var örugglega að steykja ýsu allavega var hveiti þarna og það sem er svo merkilegt við þessa minningu er ekki það að pabbi hafi verið að elda því það gerir hann mjög oft, nei þegar ég sé þetta fyrir mér þá sé ég bara hnén á pabba og svo einhversstaðar óralangt uppi er eldavélin og þetta allavega man ég að ég sé ekki upp á borðið og hausinn á pabba er ekkert inni þessu hann er bara einhversstaðar lengst uppi. Jamm svo veit maður aldrei með svona gamlar minningar hvað ég er búin að setja inn í þetta en allavega mér finnst þetta svolítið merkilegt og skrýtið að ég hafi munað þetta.

Aðalgata 3a held ég frekar en b.
þarna átti ég heima frá 3-4 til 5 ára, ég man nú allveg eftir allskonar hlutum þarna , man að einu sinni var ekki til mjólk og pabbi setti djús útá kókópuffsið mitt, ég man þegar við vorum að tala um hvað við ættum að skíra hundinn, ég man að það var mjög vont þegar pabbi missti vatnskönu ó stóru tánna mína og ég fór upp á sjúkrahús en þett mun vera í eina skiptið sem ég hef slasast og farið uppá sjúkrahús, ég man að ég var nett hrædd við kjallarann, ég man hvernig stofan leit út, ég man að ég og pabbi spiluðum prúðukalla minnispilið ótrúlega oft og ég man eftir bakaríinu þar sem Stína á Holtastöðum vann og mér fannst best í heimi að fá kleinu og kókómjólk, ég man að Snævar átti öruglega heima rétt hjá og ég man að ég var rosalega hneyksluð þegar pabbi litaði í litabók með mér og litaði útfyrir. Ótrúlegt en satt þá man ég voða lítið eftir þegar það gleymdist pottur á hellu og allt húsið sótaðist og það kom vond lykt og það þurfti að henda einhverjum bangsum , mér hefur bara mest verið sagt frá því.

Félagsheimilið.

Það var skemmtilegur tími en við bjuggum þar allavega veturinn sem ég byrjaði í 1. bekk . Röskva átti hvolpa þar , ég fékk að horfa á leikæfingar, og stundum fékk ég að stelast í kúlusjúkkið, svo gat ég stundum líka hangið með krökkunum í unglingadeildinni og það fannst mér nú svalt og vil hér með biðja all þá sem ég hékk í á þessum tíma afsökunar ég get ekki ýmindað mér annað en að ég hafi getað verið pirrandi á köflum lítill síblaðrandi besservisser er sú hugmynd sem ég hef um mig ca. upp í 5 bekk. , þetta eru aðalega Egill, Ragga og Erla Ísafold ofl. krakkar úr þeim árgandi sem ég held ég hafi verið einn mest að hanga í ég man allavega að Egill hélt með Liverpool , ég hlýt nú samt að hafa verið alltilæ allavega men ég aldrei eftir að þau hafi sagt mér að þegja eða neitt svoleiðis . Ég var örugglega með stærsta herbergi sem ég hef nokkru sinni haft enda varð það síðar skrifstofa bæjarstjóra, Ég hef samt alltaf kennt stærð hergergja sem ég hef verið í um draslið í þeim annað hvort er mikið drasl af því herbergið er svo stórt og erfitt að klára svona stórt svæði eða að það virkar bara mikið drasl af því að það er svo lítið :) Þegar ég bjó í Félagsheimilinu kynntist ég líka Dagrúnu fyrst man að mér fannst ótrúlega merkilegt að sjá gróðurhúsið.

Urðarbraut 21.

Nú hef ég of mikið að segja , en það var bara frabært að eiga að heima þegar ég hugsa um tíman þarna í heild þá kemur bara eitt orð í hugan ACTION tvær litlar systur, fótboltaæfingar, frjálsar, bekkjarkvöld, Silvanian, læra heima hitta Önnu og Sylvíu, bralla eitthvað sem við máttum ekki með Laufey , út í leiki, upp í brekku, fara á skíði, skotin í strákum, afmæli , spk, sannleikurinn og kontor, Fara á hestbak, Litli brúnn, Hólar í Hjaltadal, Mamma að baka rúgbrauð í mjólkurfernum, Fótboltamót, systur mínar að tæta bækur, skeina , syngja dvel ég í draumahöll, Erla góða erla og sofðu unga ástin mín.Súper mario bros 3.En það kom að því að Urðarbrautin var eiginlega of lítil svo við fluttum á Brekkuna og gerðumst brekkusniglar.

Brekkubyggð 4
12-16 ára og alltaf verið lögheimilið mitt þangað til í Ágúst. Brekkubyggðin er sko bestasta hús í heimi ég held að ég sé nú ekkert að þylja upp einhverjar minningar þaðan þær eru alltof margar, ég hef búið í 3 herbergjuum í þessu húsi besta var samt græna herbergið sem snýr að götunni , alltaf liðið vel þarna þó að við höfum haft blátt teppi og appelsínugulan vegg í nokkur ár og, herðatré fyrir loftnet og fleira í þeim dúr þá erum við bara svo splendit fjölskylda að við gerum þetta hús að besta húninu í bænum , reyndar sagði nú pabbi mér að það væri reimt þarna, og mér var nú ekkert allveg sama í nokkur ár þangað til Sigga Gríms sagði mér frá þessum kalli sem einhver á að hafa séð þarna og hún sagði að hann hefði verið yndæliskall svo núna býð ég honum yfirleitt góða nótt.

Heimavistin á Sauðárkróki.
Þegar ég var búin með 10. bekk lá leiðin á krókinn en það var sko málið þetta árið því það voru slatta margir busar þetta ár á vistinni bjó ég í 3 herbergjum jamm þó ég hafi nú bara verið skráð í 2 . Fyrst bjó ég með Sylvíu , svo með Önnu og svo með Matta eða já með dótið hjá önnu en sængina hjá matta, á tímbili var mér líka stundum hent yfir í herbergið við hliðina á en það er önnur saga. Á vistinni kynntist ég einum af mínum bestu vinum á vistinni varð ég ástfangin og alltaf mjög hamingjusöm , Egilskristall, eminem, sun lolly, total eclipse of the heart, latexdtrottningin, Skaffó, Ábær , Heimferðarrútan , Traðarpartý, sjálfstæðishúsið, þetta var krókurinn.

Svo flutti ég aðeins heim í janúar 2003 og vann í esso sælla minninga.

Mauro Herlitzka 585 , Las Vertientes, Cordóba, Argentína.

Argentína fór inn í mig og hefur verið þar síðan , Ég tala líka um að það sé heima, þetta var sá allra klikkaðasti staður sem ég hef búið á , mjög skrítið að hoppa úr mjög svo góðri ísl fjölskyldu í svona líka disfunctional familiu þar sem allir voru hálf tæpir á geði en ég varð hluti af henni og verð alltaf þakklát fyrir að það voru einmitt þau sem völdu mig , ég hel ég egi aldrei eftir að skilja það almennilega hvaða áhrif Argentína hefði og hefur enn á mig og líf mitt .


Nökkvavogur 13
Eftir að hafa lifað á einhverju röndóttu skýi í eitt ár var komin tími til að koma heim axla ábyrgð og mennta sig til að geta svo orðið stúdent, ég skellti myndunum upp á vegg , tók stöðupróf í spænsku og byrjaði í MH þar sem það var nánast enginn eftir á króknum og þá aðalega ekki matti sem var kominn í Iðnskólann, Nökvavogurinn var fínn kósý hverfi og lág leiga þegar maður er að legja af ömmu , Matti flutti svo inn og við áttum þarna heilan vetur máluðum meðal annars stigavegginn, vöktum okkar yndislegu nágranna um miðja nótt , það eina við Nökkvavogin var að það var ekki nokkur lifandi leið að halda partý, hoppa um með tónlistina í botni eða bara bjóða nokkrum vinum í mat því að það er svo fáránlega hlóðbært þarna og allt heyrist niður. Þannig þegar það kom að síðustu önninni þá ákváðum við að slaufa þessu og þá vantaði önnu´líka bústað og Sylvía orðin leið á því að búa heima þannig við duttum inn á

Gunnarsbraut 38
og ég verð bara að halda áfram með þetta seinna ég verð að fara í búðina.


Þessu bloggi hefði ég td. tapað ef ég hefði ekki verið búin að copya.

En hvað er málið með fólk , þú þarft að borga fyrir hotmailinn ef þú sendir ekki til 18 manns. Ég segji nú bara í eitt skipti fyrir öll ef hotmail byrjar einverntíman að rukka fyrir þjónustu sýna þá myndi koma bréf frá þeim en ekki einhverjum hálvitavinum þínum og það myndi koma í fokking fréttunum líka . Ef það er eitthva sem fer í taugarnar á mér þá eru það þessir meilar.

Góðar stundir.

9 Comments:

Anonymous Anonymous said...

ó hvað ég er sammála með þenna hotmail e-mail. ég er búin að hughreysta tvær eða þrjár konur í vinnunni. semsagt þetta er bara heimskulegasta keðjubréf í heimi og ef þú trúir því þá ertu hálfviti sem ekki hugsar!!!!

11:15 AM  
Anonymous Anonymous said...

en þetta var skemmtilegur pistill

11:16 AM  
Anonymous Anonymous said...

Nú er amman í Holti búin að lesa þennan langa pistil fyrir afa við góðar undirtektir, meðan hann notaði snyrtispegilinn.
Við hlökkum til að heyra meira!!
Kveðjur úr snjónum í Holti:
Amma og afi

3:11 PM  
Blogger Margret Silja said...

Ég verð nú að viðurkenna að ég gafst upp við að lesa áður en ég byrjaði því ég sá hvað pistillinn var langur.. er nefninlega soldið stressuð eins og er.. en ég lofa að taka helgina í þetta ;)

2:21 PM  
Anonymous Anonymous said...

Heyr heyr ..
Ég lét sko ekki gabbast af þessari vitleysu :) var að reyna að segja fólki að þetta væri bara einhver bjálfa vitleysa, fékk örugglega 500 eintök af þessu. Hvernig hefðu þeir svo sem átt að geta fylgst með þessu hverjir væru að fá og senda. BULL OG ÞVAÐUR!! :) Enginn reikningur kominn til mín þótt ég hafi hundsað þetta.

2:23 PM  
Anonymous Anonymous said...

Aldeilis yndislegar minningar sem þú átt og ótrúlega oft kem ég fyrir í þeim. Takk fyrir skemmtilegan pistil.
Pabbi.

3:07 AM  
Blogger Margret Silja said...

Jæja núna ætla ég að kvitta fyrir lesningu minni;) tók mig 7 verðmætar mínútur haha. Merkilegt líf sem þú hefur lifað, mitt viðtal hefði verið frekar einfalt: Grenihlið 5 frá 0-17 ára, Flekke Norway house herbergi 203 17-19 ára, MAgistratsvägen 55 K, Lundi 19-... ára, allt voru þetta frábærir tímar;)
En mér fannst sko eitt vanta inní heimavistar vistina: Kaffitímar heima hjá margréti, ristað brauð með pasta, súrmjólk og kryddi.. !
Haha.. en hlakka til að sjá þig á Föstudaginn..

8:14 AM  
Anonymous Anonymous said...

Vá úff! Þetta er nú ekkert lítið sem þú skrifaðir enda ófáir staðir sem þú hefur búið á ! Og já margar góðar minningar en allavega er sammála með þetta kerðjudæmi með hotmailið jeg meina hver kemur þessu af stað jeg bara spyr en já gangi þér vel í Danmörku og jeg vona bara að eitt sumarið eftir svona 3 ár geti jeg komið og dvalið svolítið hjá þér ! ;) En já elska þig ! :*

2:31 PM  
Anonymous Anonymous said...

váhh flott blogg hlakkar til að sjá þig næst.. !

3:16 PM  

Post a Comment

<< Home