Monday, September 25, 2006

Blonds have more fun

ég er orðin ljóshærð er nú ekkert búin að hafa það neitt skemmtilegra en venjulega. Er hálf vik eins og er hósta og hósta en ég nennti ekki að vera veik yfir í helgina svo ég geymdi það þangað til núna get allveg eins legið heima og lesið ins og að fara í skólan. En um helgina var enginn tími til að vera veikur... Tók næturvakt aðfaranótt föstudags og passaði uppá órólegan brunasárasjúkling, fann að ég var að vera soldið slöpp en svaf frá 8-hálf eitt. Þá reif ég mig upp því Panum meistarakeppnin í fótbolta var að byrja og bekkurinn auðvitað með lið ég var nú sennilega komin með smá hita en þar sem ég er svo ótrúlega bæði meðvitað og ómeðvitað undir áhrifum frá föður mínum og hans prinsippum þá varð ég auðvitað að spila því a) ef maður er búinn að segjast ætla að gera eitthvað þá gerir maður það eða fær einhvern annan í verkefnið og b) smá hiti er engin ástæða til að liggja undir sæng það er miklu betra að fara út og hlaupa þetta úr sér.

og ég held nú bara að fótboltinn hafi bara gert mig hressari ...svo unnum við líka riðilinn okkar og öll liðin í riðlinum. Komumst svo í undanúrslit þar sem við töpuðum fyrir besta liði mótsins í mjög spennandi leik. ótrúlega gaman að vinna loksins og það bara marga leiki í röð :)
Svo hélt ég nú að ég yrði búin á því ....en eftir heita sturtu var ég ekkert alltof slöpp og skellti mér í dinner til eins í bekknum, við vorum fimm og enduðum svo á að drekka rauðvín, borða osta, hlusta á sigur rós og ræða vandamál heimsins.......ég er endalaust að ræða vandamál heimsins við hina og þessa þessa dagana , hef soldið verið að spá í hvort maður ætti kanski að hætta að tala svona mikið um þau og gera kannski eitthvað í að leysa þau...... Málið er bara er það hægt þegar fólk er ekki sammála um hver vandamálin eru, hverjar eru ástæðurnar fyrir þeim og hvaða lausnir séu til sem ekki skapa bara önnur vandamál. ..... jamm ekki einfalt mál.

fórum sídan ég og magnus til RUC roskilde universitet en thar var svaka veisla med morg tusund manns en ein sem var med okkur i lækninum er ad læra tar nuna....kl 3 ákváðum við að taka lestina heim og það voru greinilega fleiri sem hofðu fengið þá hugmynd því lestin var gjörsamlega troðin það hefdi ekki komst fyrir ein manneskja i viðbót. Mér tókst svo auðvitað að týna töskunni minni í öllum hamagangnum en til allrar hamingju datt mer i hug að gala yfir hópinn hvort einhver væri að trampa á handtösku og viti menn kemur ekki taskan mín crowdswimming til mín, alltaf er maður jafn heppin og kemst upp með að keyra professor vandráður stílinn daginn út og inn, vill nú samt meina að ég skipti yfir í Tinna í vinnunni en það er nú önnur saga. Ég hafði fengið ansi þétta sendingu beint á kassan í fótboltanum fyrr um daginn og í lestarkremjunni þar sem maður fékk að vita hvernig smygluðu fólki hlýtur að líða á leið til fyrirheitna landsins var pressað ansi mikið á sama stað .
Morguninn eftir þegar ég vaknaði kl half 9 eftir 4 tima svef til að fara í klippingu átti ég hálf erfitt með að standa uppúr rúminu sökum verkja i rifbeinum eða yfir brjostkassanum dröslaðist nú samt í klippingu og sagði honum ævari bara að ráða hvað hann gerði við lubban minn. Hann setti i mig þennan líka fallega gyllta lit og stytti aðeins á mér hárið (ég er ótrúlega sátt). Það er einstaklega gott þegar maður er hálf sjúskaður eitthvað að láta þvo á sér hárið það er fát jafn meira afslappandi finnst mér að halla sér aftur og láta róta í hárinu, kannski maður ætti að fara að stunda þetta reglulega , fara alltaf á sunnudögum í hárþvott ..... jamm þetta fer á listann "ef ég skiti peningum " Svo hafði ég loksins tíma til að hitta kærastann já eða hann tíma til að hitta mig en við höfðum ekki sést í viku , hann gaf mer svo mp3 spilara i afmælisgjöf sem eg er svo ánægð með. Jæja svo um kvöldið var stelpukvöld hjá okkur stelpunum á ganginum 11 stelpur af 12 mættu og við elduðum rosa góðan mat og drukkum mojitos og töluðum um strákana á ganginum og sögðum leyndarmál ...síðan var dansað og farið í Limbó.
Merkilegt nok var ég allveg hætt að finna til í rifbeinunum eftir nokkur rauðvínsglös og nokkra mojito ....... og þá var jú ekkert mál að vera með í limbó dansa villt og galið og syngja svo "i'm just a girl" svo glummdi í öllu húsinu ...............Ég vaknaði svo daginn eftir eftir að hafa sofið í ca. 12 tíma gjörsamlega handónýt strengir í báðum fótum frá nára niðrí hæl , svo illt i rifbeininu að hver hreyfing var átak og ég gat ekki einu snni hóstað eða snýtt mér nema af hálfum krafti það var so vont...Er mikið að spá í hvort ég hafi brákað rifbenið en ég vil ekki vera að eyða skattpeningum danana í að athuga það þar sem þeð er ekkert að gera í því hvort eð er . Núna er ég líka farin að geta hóstað og snýtt mér af fullum krafti og hef svolítið verið að dunda mér við það í dag.


veit að það vantar örugglega slatta af punktum og kommum o.þ.h.

4 Comments:

Blogger Hugrún Sif said...

LOL ... þú ert svo mikill snillingur og besti penninn :-D

9:53 AM  
Anonymous Anonymous said...

Elsku Elva.
Það eru fleiri heima sökum lasleika og eiga sömu hugsjónir með að standa við sitt eða útvega aðra. Góð regla það og hægt að stóla á mann.
"Eldri konur" sleppa sennilega fleiru en þú, a.m.k. þegar lasleikinn er að angra.
Skrifa lengra mail.
Knús frá ömmu og afa í Holti

11:35 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hey settu inn mynd af do-inu mig langar að sjá

8:35 AM  
Blogger Margret Silja said...

Nei nei alger óþarfi að komast að því hvort maður sé brotin eða ekki.. þá væri maður bara með samviskubit yfir því að djamma;) Mamma braut nebbla MJÖG líklega á mér tánna um helgina en ég ákv að láta ekki staðfesta það þar sem ég þurfti að fara á Laufskálaréttarball að láta að traðka á tánum á mér í staðinn;)

En ljóshærð.. óóó hvað hlýtur að vera gaman hjá þér.. segirðu sjálfri þér ekki brandara fyrir svefninn eins og ég geri?

4:54 PM  

Post a Comment

<< Home