Monday, May 08, 2006

í sól og sumaryl

ástæðan fyrir bloggleysi er sú að ég er búin að vera úti í góða veðrinu :) Margrét kom í heimsókn frá svíþjóð um helgina og við lágum úti í almenngsgörðum kaupmannahafnar og lásum á meðan við fengum lit. Hún byggingar eitthvað eðlisfræði eitthvað og ég las um heilbrigðisþjónustu í fjölmennngarsamfélögum. Svo skelltum við okkur til Hildar sem vinnur í ísbúð við söerne og fengum okkur ís , Hildur er Færeysk vinkona Margrétar frá Noregsárum hennar, það hefur áræðanlega verið skondið að hlusta á okkur tala saman ég talaði dönsku og Hildur talaði dönsku við mig. Margrét talaði sænsku og ég held að Hildur hafi talað norsku við Margréti og engin af okkur er frá þessum löndum :)
Annars er bara stress yfir sálfræðiritgerð og stress yfir hvað það er stutt í próf og dagarnir líða alltof hratt , ég má heldur ekkert vera að því að falla því eg er búin að plana allt sumarið.
Svo til að ég eyði nú örugglega tímanum í eitthvað annað en að læra þá er ég víst allveg óvart búin að næla mér í kærasta , ég var nú alls ekki á höttunum á eftir einum slíkum og hann var nú heldur ekkert að leita sér að kærustu en við semsé álpuðumst til þess að verða það hrifin að jamm við erum allavega á föstu . Hann heitir Rasmus rögvi og er á 3. önn hann er danskur en á víst einhverjar ættir að rekja til Færeyja . Jamm ég ætla ekki að vera með neinar stórar yfirlýsingar en so far so good.

En allavega læra læra læra það er það sem gildir næsta mánuðinn og rúmlega þar , ekkert líf utan skólans og svo kemur sumarfrí.

veit ekkert hvenær ég blogga næst þessvegna ekki fyrr en eftir próf.

9 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Vil bara benda þér á að ég er búin að svara commentinu þínu.
Ef þú ert að velta fyrir þér afhverju enginn er búin að commenta á þennann póst þá býst ég við að flestir séu eins og ég og hafi fengið nett sjokk við að frétta að þú ættir kærasta á BLOGGINU þÍNU!!! man þetta!!! *uppgerðarlegt hnuss*

10:06 AM  
Anonymous Anonymous said...

Gangi þér vel í prófum og prófalestri... vona að þér gangi betur en mér að lesa!!

7:43 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hehehe til hamingju með kallinn og gangi þér vel í prófunum!! ;)

12:00 PM  
Blogger Margret Silja said...

Takk fyrir góða helgi (ég ætti kannski að kvítta á úddlensku svona í anda helginnar;) en veðrir batnar bara og brúnkugreddan eykst.. hvar á þetta að enda eiginlega;)

1:36 PM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með kærastann... eða eitthvað

3:34 PM  
Anonymous Anonymous said...

koma svo, blogga!!!!!!!!!!

10:37 AM  
Blogger Hugrún Sif said...

Takk fyrir skemmtilega ferð í dýragarðinn :) Það er greinilegt að þú braggast vel í DK og kannski bara lán í óláni að þú skildir enda þar í læknanáminu en ekki á Íslandi :)

See ya

1:52 PM  
Anonymous Anonymous said...

jæja hvernig fóru prófin? eða eru þau ekki búin

vonandi hittumst við e-d í sumar og til hammó með kærastann hehe :)

3:04 AM  
Anonymous Anonymous said...

VOnandi gengur þér bara sem allra best. Er á leið í inntökuprófið í næstu viku og þyrfti helst tvær til þrjár vikur í viðbót til þess að ná að fara yfir þetta efni. Vonandi sér maður þig eitthvað í sumar. KV. Dagrún

6:04 AM  

Post a Comment

<< Home